Regnhlífar og rigning
Ég á regnhlífar, já ekki eina litla netta sem kemst fyrir í bakpoka, ó nei, heldur þrjú stykki sem eru meira í átt við göngustafi en eitthvað annað. Eina keypti ég, aðra fékk ég gefins frá UNDP og þá þriðju gleymdi einhver heima hjá mér. Það er sumsé alltaf ein við höndina: í bílnum, í vinnunni og heima. Þessa dagana er þó best að hafa eina alltaf með sér.
Í tvær vikur hefur rignt og rignt hér í Suva, svona dæmigerðu hitabeltis úrhelli, með smá hléum öðruhverju. Veðurupplýsingar frá BBC sýna að næstu daga heldur rigningin áfram. Nú en reynslan frá í fyrra segir mér að þess mikla rigning haldi áfram í nokkuð margar vikur til viðbótar.
Ekki kvarta ég, verandi svona afskaplega vel útbúin. Það er annað en í fyrra þegar mér leið eins og í stofufangelsi, með lítið regnhlífarkríli sem gerði mest lítið gagn, og ekki búin að skapa samband við hverfisleigubílastöðina sem núna sendir bíl til mín um leið og ég hef sagt : Bula, this is Helga Bára
