Nú ár er liðið
...síðan ég flutti til Suðurhafa, og vegabréfið lumar núna á stimplum frá Fídjíeyjum, Sólomóneyjum, Ástralíu og Nýja Sjálandi, - og líka frá nokkrum löndum í Norður-Kyrrahafi: Marshall eyjum, Phonpei (einu af Sambandríkjum Micrónesíu), Palau, og einnig nokkrum frá Bandaríkjunum ( því ferðalag um Norður-Kyrrahafið krefst millilendinga í Guam og líka Hawai). Nýjasta viðbótin í vegabréfið er svo handskrifuð framlenging þar til í lok september á næsta ári á undanþágu frá vegabréfsáritun fyrir Fídjíeyjar, og næsti stimpillinn mun svo líklega vera frá Tonga.
Þetta er hópurinn sem fór í vinnuferðina til Marshall eyja, Phonpei og Palau. Íslendingur, Ástrali og þrjú stykki frá Fídjíeyjum. HBB, Charmaine Rodrigues, Patrick Tuimaleali´ifano , Virisila Raitamata og Ronald Ho. Þess ber að geta að sú lengst til vinstri hefur ekki algjörlega mist klæðasmekk sinn, hún er einfaldlega í hefðbundum fötum frá Fídjíeyjum. Það er sumsé mjög vinsælt fyrir konur að vera í blóma alklæðnað, þó sérstaklega á föstudögum. Karlar láta duga að fara í blómaskirtu.
p.s. Hlýjir straumar eru sendir til Bakkahjallans í tilefni dagsins, afmælisdagsins.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli