Ruðningslið Fídjí kom súperkátt heim frá Rugby World Cup (.. ja þ.e. helmingurinn sem býr á Fídji) og fékk hetjumóttökur þrátt fyrir að hafa tapað leiknum gegn Suður-Afríku í fjórðungsúrslitunum.
Fréttir af fyrsta leiknum í fjórðungsúrslitunum fengu göngugarpar (sjá að neðan) að morgni dags frá þorpshöfðingjanum í Nagatagata, þar sem gist var fyrstu nóttinna. Hann hafði sumsé hlustað á úrvarpið um nóttina. Ástalía tapaði, og þóttu það merkar fréttir. Fréttir af næsta leik komu nokkrum stundum síðar, stuttu eftir leikslok, frá bónda mjög svo fjarri alfaraleiða, sem lumaði líka á útvarpi. Nýja Sjáland tapaði, og þótti það enn merkilegra. Þriðji leikurinn var leikur Fídjí , og vildi svo vel til að þorpið sem við gistum í þá nóttina, Nubautauta, lumar á rafal svo menn gátu séð leikinn (.. já og líka sjónvarpi, og vel löngu sjónvarpsloftneti upp á hæð fyrir ofan þorpið).
Í Nubautauta* er annars ekkert rafmagn, né símasamband, og græjan sem tekur á móti útvarpssendingum er biluð, já og tæp dagsganga að næstu þorpum í norður og suður. en að öðru leiti allt til alls til að vera til, eins og ræktarland, ferskvatnsá og þess háttar.
Nú, aftur að rafalnum. Hann er borinn á mikilvægum stundum upp á hæðina fyrir ofan þorpið, og sjónvarpið líka. Þetta var í annað skiptið sem Fidjí komst í fjórðungsúrslitin (..það virðist alltaf gerast stuttu eftir stjórnarbyltingar) og því mikilvægt að fylgjast með þessum stórviðburði. Okkar menn töpuðu gegn S-Afríku, en spiluðu vel, og er það sem skiptir mestu máli hér á þessum enda. Fóru því þorpsbúar og gestir eftir leikinn nokkuð kátir niður stígalausa hæðina um miðja nótt í niðamyrkri, og gerðist það nokkuð áfallalaust. Hver vann fjórða leikinn skipti okkur svo engu máli.
Nú í öllu falli þá vann Suður-Afríka keppnina, Fídjíliðið er meira en sátt við sitt .... og þar með líkur fréttum af ruðningsbolta, í bili.
*) Nubautauta er nánast á miðri Viti Levu eyjunni, og er helst þekkt fyrir að þar drápu menn og átu kristniboða fyrir margt löngu. Það var áður en Fídjíbúar hættu að vera mannætur og gerðust kristnir, ....eða þannig hljómar amk söguskýring þorpsbúanna.