Murder (?)
Á sunnudagsm0rgunn, hér í Suva, fannst maður látinn á veröndinni sinni, með stungusár í hjartastað. Fyrstu fréttir voru þær að að maðurinn hefði stungið sjálfan sig í hjartað (!), en núna er vafi kominn í það mál.
Þeir Jioje, Douglas og Wilson hafa fylgst með því að allt sé með kyrrum kjörum í kringum bygginguna sem ég bý í, einn á vakt í einu. Þetta eru óskup ljúfir menn, og oft er rabbað um menn og málefni þegar ég kem og fer. Þeir þekkjast allir frá barnæsku, höfðu svo farið og siglt um heimsins höf á ýmsum farskipum, en eru núna allir aftur komnir með báða fætur á skerið sitt Fiji, og lifa hefðbundu fjölskyldulífi auk þess að vera í nokkuð tíðindalausu starfi.
Núna eru þeir bara tveir eftir. Jioje er dáinn.
One of the guards at my place is dead.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli