Veðurfréttir - Cyclone Daman
Þessa stundina er ofsaveður á ferð um Suðurhöfin. Það er hægt að fylgjast með því hér.
Veðrið er að koma að Fídjíeyjum, á nettum 15km/klst hraða. Fólk á ákveðnum svæðum hefur verið hvatt til að koma sér upp byrgðum af dósamat og vatni og allmennt undirbúa sig undir mögulegar hamfarir.
Við hér í Suva á suðauðstur horni Viti Levu ættum að sleppa, og jólaveislu þeirra á svæðaskrifstofu UNDP hefur ekki verið aflýst. Ég fæ að sniglast inn í þá veislu í kvöld, enda er ég oft á tíðum eitthvað að stússast með fólkinu sem vinnur þar. Ég þarf bara að finna mér einhverja rauða/græna flík .....
1 ummæli:
Hæ hæ og gleðilegt nýtt ár, hvernig voru svo jólin og áramótin ?
Vona að þú hafir það sem allra allra best.
Knús Þóra
Skrifa ummæli