16 september 2007

16.september 2007

Það er víst merkis dagur, þessi 16. september. Hér á Fídjíeyjum mun her manna ganga um í heila viku til að komast að því hvar hver og einn var þennan dag, og með hverjum, já sumsé sérstaklega hvar fólk gerði sig heimakært.

Ekki hefur enn verið bankað upp á hjá mér, en þar sem sunnudagar eru miklir kirkjudagar þá byrjar verkið líklega ekki fyrr en á morgun. Ekki er hefð á þessum bæ að fara til kirkju, en fyrri partinum var á hinn bóginn eytt heima í risinu þar sem nokkrir “nýjir” og “gamlir” vinir komu í brunch. Það stendur til að skapa hefð úr því. Það rigni ekki svo við héldum okkur til á svölunum. Svo stoppuðum við á mánaðarlega götumarkaðinn hér í Suva, - áður en nokkur af okkur keyrðum rétt út fyrir borgina til að vaða upp straumlitla á og synda við foss í henni. Óskup ljúft. Nú, þegar heim var komið aftur eyddi ég dágóðum tíma í að gera hluti fyrir vinnuna, - og nei, það stendur ekki til að skapa hefð úr því.

En já, það er sumsé manntalsvinna í gangi hér í Fídjíeyjum, og þar sem unnið er eftir hávísindalegum aðferðum þá var ákveðið að einbeina sér að heimilisfesti fólks á þessum ákveðna degi, 16. september 2007. Þegar búið er að vinna úr gögnunum verður líka einu af fyrstu skrefunum í kosningaundirbúningi lokið. Þingkosningarnar verða væntanlega árið 2009, eða þar um bil, það fer eftir því hver er spurður .....

Nú, en hvar varst þú þann sextánda ?

p.s.
Hlýjir straumar eru sendir "norður", og þá sérstaklega til afmælisbarnsins.

1 ummæli:

Thora sagði...

Ég var sko týbískur íslendingur og fór í IKEA, var að drepast úr leiðindum, en keypti voða flotta mottu á nýju skrifstofuna mína :)
Hafðu það gott.
Knús Þóra