21 september 2007

Caqalai eyja

...er við austurströnd Viti Levu í ca klukkustundar akstri og klukkustundar bátsferð frá höfuðborginni. Eyjan er smærri en smátt, það tekur um 10 mínútur að rölta í hringinn í kringum hana. Fyrir utan eyðieyju náttúrustemningu þá lumar Caqalai á litlu öðru en mjög einföldum gististað þar sem matmálstímar eru tilkynntir með blæstri í kuðung, og þar er ekkert við að vera nema að vera til, spila blak með tylftinni sem býr og starfar á eyjunni, skreppa með þeim í messu á næstu eyju, já og líka fljóta um með köfunargleraugu og öndunarpípu og skoða marglita kórala, og líka stóra og smáa marglita fiska, svona eins og þá í myndinni "Finding Nemo". Þetta er alveg magnaður staður. Myndir úr helgarferðinni birtast fljótlega.


1 ummæli:

Thora sagði...

Vá, næs maður !!!!!