Fótbolti og stjórnmál
Undankeppni FIFA fyrir Heimsmeistarakeppnina í fótbolta 2010 er í góðum gír. Hér í Kyrrahafsdeildinni voru leikir Nýja Sjálands og Fídjíeyja á dagskrá fyrir stuttu. Heimaleikur Fídji fór fram, en ekki sá á Nýja Sjálandi.
Ástralía, Nýja-Sjáland , Bandaríkin, og reyndar líka Japan (án þess að auglýsa það of mikið) hafa öll ákveðið að fólk sem starfar fyrir herinn eða er í lykilstöðum í núverandi stjórn Fíji og nánir ættingjar þess, geta ekki fengið vegabréfsáritanir inn í þessi lönd.
Nú, og þannig er mál með vexti að tilvonandi tengdafaðir markmanns Fidjí liðsins vinnur fyrir her Fídjí, og gat hann því ekki fengið vegabréfsáritun (.. markmaðurinn sumsé).
Fidjiliðið var víst tilbúið að leika í Nýja-Sjálandi án markmannsins, en þó ekki án þess að kvarta. FIFA tók þá ákvörðun að heimaleik Nýja-Sjálands yrði aflýst því ekki á að blanda saman stjórnmálum og fótbolta. Það er enn ekki búið að ákveða hvort að leikurinn eigi að fara fram í “hlutlausu landi” eða Fídjí verði dæmdur sigurinn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli