Helgardagskráin
Fjórðungsúrslit í Heimsmeistaramótinu í ruðningsbolta verða í sjónvarpinu í beinni um helgina. Þjóðarsálin verður víst öll samstillt þegar Fídjí leikur gegn Suður-Afríku á sunnudagsmorgunn.
Þjóðhátíðardagur Fídjí er miðvikudaginn 10. október. Hann er "færður" fram á mánudaginn og hátíðarhöld munu standa yfir alla helgina, t.d. í gömlu höfuðborginni Levuka, á Ovalau eyjunni ( austur of litlu Caqalai eyjunni fyrir þá sem þekkja til) .
Hópur fólks mun fara í 3ja daga rölt þvert yfir hálendi Viti Levu, frá norðri til suðurs. Hópurinn mun njóta gestrisni fólks í tveimur afskekktum þorpum á milli þess sem gengið er eftir nokkrum fjallahryggjum, valhoppað niður eftir löööngum dal og vaðið yfir tvær tylftir áa.
1 ummæli:
Kúl, að rölta þvert yfir hálendið á 3 dögum.
Magnað.
Skrifa ummæli