Assassination plot (?)
Það er lögreglustöð í miðbænum, beint á móti vinnunni. Hún stendur á bletti á milli fjögurra gatna. Frá laugardegi og fram í miðja þessa viku voru hliðargöturnar tvær lokaðar. Svona ráðstafanir eru aldrei gerðar í kringum þessar byggingar, en núna hafði herinn víst handtekið nokkra einstaklinga sem taldir eru stórhættulegir, og voru þeir tímabundið í haldi á þessari lögreglustöð. Aðalmaðurinn var þó bara dagspart þar, því hann slasaðist þegar hann var handtekinn. Núna viku síðar liggur hann enn á sjúkrahúsi, .. m.a. kjálkabrotinn.
Það eru ýmsar áhugaverðar flækjur í málinu. Aðalmaðurinn, sem er fæddur og búsettur hér á Fíji , er nýsjálenskur ríkisborgari. Kunningjar mínir í sendiráði Nýja Sjálands hafa því undanfarna daga dustað rykið af Vínar sáttmálanum, svarað fyrispurnum frá fjölmiðlum, og núna í lok vikunnar líka fengið að fara í sjúkrahúsheimsóknir.
Já, málið er víst það, að hópur manna er sakaður um að hafa ætlað að drepa mann og annan, já svona eins og hálfa ríkisstjórnina. Þetta eru nýjustu fréttirnar:
"The 11 accused persons who were charged over their involvement in the alleged plot to overthrow the Interim Government & military, hence assassinate the Commander and a number of Cabinet Ministers and military personnel’s, have been remanded in custody until 12th December for their next court sitting. Their request for bail have been refused."
More news on this matter can be found through the Fiji newslinks on the sidebar, and on also on the BBC web
2 ummæli:
whoho, þetta er bara eins og í bíómynd.
jú jú, "bourne" handritshöfundar eru að ræða um að nota þetta sem söguþráð í næstu mynd ... ;-)
Skrifa ummæli